Prologus var stofnað 1997 af Guðmundi Einarssyni, aðalhönnuði fyrirtækisins. Guðmundur lagði stund á iðn- og vöruhönnun við Istituto Europeo di Design á Ítalíu og framhaldsnám við Rhode Island School of Design í Bandaríkjunum og opnaði ráðgjafastofu undir eigin nafni á Íslandi 1993. Á þessum árum vann Guðmundur jöfnum höndum að ráðgjöf, vöruþróun, verkefnastjórnun og hönnun fyrir fyrirtæki og stofnanir á Íslandi og erlendis. Samhliða vann Guðmundur að eigin vöru- og húsgagnahönnun sem síðar varð grundvöllur að stofnun Prologus.
Prologus hefur lagt áherslu á að byggja upp öflugt og leiðandi hönnunarhús þar sem saman kemur hæfileikaríkt fagfólk á ólíkum sviðum í samstarfi við fjölmörg íslensk iðnfyrirtæki sem hafa áratuga reynslu af framleiðslu og smíði. Gagnkvæmt traust þar á milli og samhæfing hugvits, þekkingar og færni í hönnun er það sem fyrirtækið vill standa fyrir og endurspeglast í vörum fyrirtækisins.
Sem hönnunarhús hefur Prologus kappkostað að hlúa að þeim verðmætum og gæðum sem tengjast fyrirtækinu og byggir hugmyndafræðin á þessum þáttum. Ímyndin er einlæg og hrein í takt við þá ímynd sem hefur einkennt Ísland útávið og byggir á því sem landið hefur upp á að bjóða - vistvænt og hreint land í rökréttu samhengi við nýtingu fólks á náttúruauðlindum.
Fágun og fagmennska hafa verið einkunnarorð fyrirtækisins frá upphafi og við hönnun á vörulínum Prologus er það metnaðurinn við að gera alltaf sitt besta á hverju sviði sem hafður er að leiðarljósi. Þar leggjast allir á eitt svo árangurinn verði í samhengi við þær forsendur og markmið sem lagt var upp með.
Prologus er leiðandi íslenskt hönnunarhús sem kappkostar að vinna náið með viðskiptavinum sínum og hefur á undanförnum áratug sérhæft sig í hönnun, framleiðslu og sölu á húsgögnum og innanstokksmunum fyrir fyrirtæki og heimili. Í dag býður fyrirtækið fjölbreytt úrval húsgagna og fylgihluta, meðal annars stóla, sófa, skenka, skiltalínur, sýningaskápa, bæklingastanda og skrifstofuhúsgögn auk þess að bjóða upp á sérhannaðar lausnir.