Prologus merkir formáli, undanfari, innsetning eða forsendur.
Orðið á uppruna sinn í vöggu vestrænnar siðmenningar, grísku og latínu, og er samsett úr forskeytinu pro sem þýðir á undan og logos sem þýðir ræða eða tala, en það er einnig nátengt orðinu logic sem snertir rökfærslu, samhengi, rökrétta hugsun og þekkingu.
Nafn hönnunarhússins PROLOGUS undirstrikar eðli og nálgun hönnunar.
Áhugaverð hönnun er afrakstur rökréttrar hugsunar þar sem margvíslegar forsendur um notagildi, tæknilausnir og listrænar kröfur eru leiddar saman í formála að skynjun og upplifun.